ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Myndband: Axl Rose réðst á ljósmyndara

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:31 › 11. desember 2009
Axl Rose sést hér ráðast til atlögu gegn ljósmyndaranum.

Axl Rose sést hér ráðast til atlögu gegn ljósmyndaranum.

Axl Rose, söngvari rokksveitarinnar Guns N‘ Roses, gerði sér lítið fyrir og réðist á ljósmyndara á dögunum. Atvikið átti sér stað á alþjóðaflugvellinum í Los Angeles á miðvikudagskvöldið. Ástæðan fyrir árásinni var sú að ljósmyndarinn kom of nálægt konu í föruneyti söngvarans.

Áður en Rose réðist til atlögu sagði hann ljósmyndaranum að halda hæfilegri fjarlægð frá konunni sem var með í för. Ljósmyndarinn virti tilmæli Rose að vettugi og því réðist söngvarinn á ljósmyndarann og náði meðal annars að slá hann í jörðina. Rose var á leið til Asíu með hljómsveit sinni þegar atvikið varð. Myndband af atvikinu var fyrst birt á vef TMZ en það má sjá hér að neðan:

Myndband



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.