ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW

Konan fyrirgefur kannski en auglýsendur ekki

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
07:45 › 11. desember 2009
Tiger og Elin.

Tiger og Elin. AFp

Auglýsendur virðast ekki ætla að fyrirgefa Tiger Woods þann siðferðisbrest sem einkennt hefur líf hans og heimsbyggðin hefur verið upplýst um undanfarna daga. Samkvæmt vinum Elinar Nordegren, eiginkonu Tigers, hyggst hún þó ekki fórna hjónabandinu að sinni. Án efa verður þó erfitt að bæta þá bresti sem komnir eru í sambandið.

Um níutíu prósent tekna kylfingsins Tigers Woods má rekja til auglýsingasamninga sem hann hefur gert við hin ýmsu fyrirtæki. Nú virðist sem síðustu uppljóstranir um kvennamál Tigers séu kornið sem fyllir mælinn hjá styrktaraðilum hans sem einn af öðrum setja hann út af sakramentinu þvert á yfirlýsingar um hið gagnstæða skömmu eftir að frásagnir um hjúskaparbrot hans komust í hámæli.
Samkvæmt bandaríska fjölmiðlakönnunarfyrirtækinu Nielsen þarf að fara aftur til 29. nóvember til að finna auglýsingu með Tiger Woods sem send var út á besta tíma. Um var að ræða 30 sekúndna auglýsingu frá Gillette. Sú auglýsing var sýnd níu sinnum í nóvembermánuði en hvarf með öllu eftir 29. nóvember. Svipaða sögu er að segja af fimmtán öðrum auglýsingum með honum.

Til hvaða ráða Elin Nordegren, eiginkona Tigers, grípur til er of snemmt að segja. Samkvæmt eldri fréttum hugði hún á brottför og hafði fest kaup á húsi heima í Svíþjóð ásamt tvíburasystur sinni.
Á vefsíðu Daily Mail er haft eftir vinkonum Elinar að hún hafi vitað af kvensemi Tigers áður en þau gengu í hjónaband. „Elin hafði talað við aðra golfara og konur þeirra um villtu partíin hans Tigers. Þegar hún spurði Tiger um þau, sagði hann að hann myndi láta af þeim. Og hún trúði honum. En hann stóð ekki við það,“ hefur Daily Mail eftir einni vinkvenna Elinar.

Einnig hefur blaðið eftir ónafngreindum vinum Elinar að hún sé eyðilögð manneskja vegna umfangs meintrar ótryggðar hans en hún ætli ekki að fórna hjónabandinu. „Hún er skilnaðarbarn og það er ekki líklegt að hún vilji að Sam og Charlie [börn hjónanna] gangi í gegnum slíkt,“ er haft eftir vini Elinar í bandaríska tímaritinu People.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.