Kunningjakona Ásdísar Ránar Gunnarsdóttur, sem hefur kynnst henni bæði í leik og starfi, segir Ásdísi vera ansi klóka.
„Ásdís er snjallari en flestir gera sér grein fyrir. Henni hefur tekist að sannfæra Búlgara um að hún sé heimsfræg á Íslandi og Íslendinga um að hún sé heimsfræg í Búlgaríu. Þetta hefur á endanum orðið til þess að fjölmargir þekkja nafn hennar í báðum löndum. Hún er í raun Jordan okkar Íslendinga, eða Paris Hilton, meistari í því að vera fræg fyrir frægð. Þetta er engin tilviljun, og ég er sannfærð um að þetta hefur verið úthugsað hjá henni frá upphafi.“
Hún segir Ásdísi mjög misskilda og harða í horn að taka þegar kemur að viðskiptum.
„Ásdís er langt frá því að vera heimsk, hún hefur bara furðulega lífssýn og sannfæringar. Hún hefur náttúrlega búið sér til feril og lifibrauð af útliti sínu þannig að líf hennar snýst í raun um hvernig hún lítur út og ég hef oft velt því fyrir mér hvað verður um hana, þegar hún verður „útrunnin vara“ eins og hún óumflýjanlega mun verða. Hún getur verið hörð í horn að taka í viðskiptum. Lætur allavega ekki vaða yfir sig og stendur föst á sínu.“
Ítarleg nærmynd um Ásdísi Rán er í helgarblaði DV.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar
Bauð engum stjörnum