ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW

Hótaði barnsmóður sinni og nýjum kærasta hennar

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
15:48 › 11. desember 2009

Karlmaður var í dag dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi hótanir, eignaspjöll og vopnalagabrot sem beindust gegn fyrrverandi unnustu hans og barnsmóður sem og kærasta hennar.

Var manninum gefið að sök að hafa farið að heimili kærasta fyrrverandi unnustu sinnar 8. febrúar þessa árs og hellt gosidrykk inn um glugga á íbúð hans, yfir tölvuskjá, lyklaborð og skrifborðsstól sem þar var fyrir innan svo hlutirnir eyðilögðust.

10. febrúar átti hann að hafa hringt með hótunum í kærastann, sagt við hann að hann myndi mæta heim til hans og brjóta á honum báða fæturnar, fara síðan í vinnuna hans og „klára hann“

12. febrúar var maðurinn sagður hafa farið fyrir utan skemmtistaðinn Q bar í Reykjavík og beint silfraðri loftskammbyssu út um glugga á bifreið og hótað kærastanum.

Laugardaginn 23. maí sendi hann síðan barnsmóður sinni SMS sem í stóð: „Farðu til lögreglunnar og kærðu mig, ég mun meiða þig meira,“

Fimm dögum síðar var maðurinn mættur með hafnarboltakylfu fyrir framan hús konunnar. Barið með henni í ljós í innkeyrslu, blómaker fyrir framan húsið, blómapott á palli við húsið. Sama dag las hann skilaboð inn á símsvara í borðsíma á heimili konunnar og sagði konuna og kærasta hennar að þau myndu „deyja í dag.“

Maðurinn neitaði að hafa hellt gosdrykknum yfir tölvubúnað mannsins og að hafa hótað að brjóta fæturnar á manninum. Hann játaði sök í öllum hinum atriðunum. Hann var fundinn sekur í þeim ákæruliðum sem hann hélt fram sakleysi sínu í.

Fram kemur í dómi héraðsdóms að hótunarbrot mannsins hafi verið alvarleg en refsing hans þótti hæfilega ákveðin þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi.

Loftskammbyssan varð gerð upptæk og manninum gert að greiða málsvarnarlaun upp á 230 þúsund krónur.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.