ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 5m/s SE

Hetja ársins hjá DV

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
16:07 › 11. desember 2009
Þráinn Bjarnason Farestveit, hetja ársins hjá DV 2008

Þráinn Bjarnason Farestveit, hetja ársins hjá DV 2008 MYND Sigtryggur Ari

Hetja ársins hjá DV verður nú valin í annað sinn. Lesendur eru beðnir um að senda nafn eða nöfn þeirra sem þeim finnst verðugir þess að bera nafnbótina Hetja ársins 2009 fyrir eitthvað sem viðkomandi afrekuðu á árinu sem nú er senn á enda.

Allir Íslendingar og þeir sem búa hér á landi koma til greina í valinu og er öllum frjálst að senda inn tilnefningar. Engu skiptir hvort fólk er þjóðþekkt, minna þekkt eða alls ekkert þekkt; ríkt, fátækt eða þar á milli; útrásarvíkingur, fiskverkakona eða meindýraeyðir - allir eru gjaldgengir í kjörinu. Ef viðkomandi hefur ekki komist í fréttirnar fyrir afrek sitt verður að fylgja með lýsing á því hvernig hinn tilnefndi lét gott af sér leiða á árinu. Ritstjórn DV velur hetjuna og tekur þar mið af innsendum tilnefningum, án þess þó að vera alfarið bundin af því að velja hetjuna úr hópi tilnefndra.

Bæði er hægt að senda tilnefningar á netfangið hetjaarsins@dv.is og á Birtíngur útgáfufélag, Lynghálsi 5, 110 Reykjavík. Skilafrestur er til miðnættis 21. desember en niðurstaða útnefningarinnar verður kunngjörð í kringum áramótin.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.