ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Fjölskyldumaður grunaður um að nauðga 16 ára

Valgeir Örn Ragnarsson valgeir@dv.is
18:11 › 11. desember 2009
Tæplega þrítugur karlmaður er grunaður um nauðgun. Hann neitar sök.

Tæplega þrítugur karlmaður er grunaður um nauðgun. Hann neitar sök. Mynd Róbert Reynisson

Tæplega þrítugur fjölskyldumaður er grunaður um að hafa nauðgað sextán ára stúlku á Snæfellsnesi um síðustu helgi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni átti meint nauðgun sér stað í samkvæmi á heimili mannsins, aðfaranótt sunnudagsins 6. desember.

Lögreglan í Snæfellsbæ fór upphaflega með rannsókn málsins, en hún er nú í höndum lögreglunnar á Akranesi. Samkvæmt heimildum DV hefur lögreglan yfirheyrt nokkur vitni undanfarna daga vegna málsins.

Stúlkan var færð til læknis daginn eftir og samkvæmt heimildum bar hún sjáanlega áverka eftir hina meintu nauðgun. Maðurinn var handtekinn og settur í varðhald. Heimildarmaður DV fullyrðir að hinn grunaði sé sakaður um að hafa keflað stúlkuna og nauðgað henni í samkvæminu. „Þetta er lygi, algjör steypa,“ segir maðurinn sem harðneitar sök.

Þetta er annað málið á Snæfellsnesi á skömmum tíma þar sem ungar stúlkur kæra nauðgun.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.