ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW

Grímur: Eðlilegt að formaðurinn svari fyrir lúxusturninn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:00 › 11. desember 2009
Grímur taldi eðlilegt að Bjarni myndi svara fyrir aðildi sína að viðskiptum með lúxusturninn í Makaó.

Grímur taldi eðlilegt að Bjarni myndi svara fyrir aðildi sína að viðskiptum með lúxusturninn í Makaó.

„Ég tel að hann hafi svarað mjög skýrt og á fullnægjandi hátt,“ segir Grímur Gíslason, formaður kjördæmisráðs Suðurkjödæmis. Eins og DV.is greindi frá í kvöld krafði Grímur Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, svara um aðild sína að viðskiptum með lúxusturninni í Makaó í Asíu.

Aðspurður hvort honum finnist sá gjörningur Bjarna, að taka þátt í kaupum á lúxusturninum í Makaó, vera eðlilegur segir hann: „Miðað við skýringar sem hann hefur gefið þá get ég ekki séð að þetta sé eitthvað sem sitji í fanginu á honum.“

Aðspurður hvers vegna hann spurði Bjarna út í málið segir Grímur að hann hafi lesið frétt DV um málið á miðvikudag. Kveikjan að fyrirspurninni hafi ekki verið sú að hann teldi eitthvað óeðlilegt við aðkomu flokksformannsins að málinu.

„Ég tel eðlilegt, að ef formaður flokksins er ásakaður um eitthvað slíkt, eins og gert var í DV, að hann gefi skýringar á því í miðstjórn,“ segir Grímur sem vill ekki fara nánar út í svör Bjarna við fyrirspurninni. „Ég tel að í miðstjórn fari fram umræður sem eigi ekki endilega að rata beint í fjölmiðla.“

Heimildir DV herma að Bjarni hafi svarað því sama til og í fjölmiðlum; að hann hefði ekki þekkt til verkefnisins og ekkert komið að ákvörðunum þótt hann hefði verið stjórnarformaður í BNT sem var stór hluthafi í Vafningi ehf. sem fjárfesti í turninum.

Aðspurður um það að hann fékk og framvísaði umboði til að veðsetja Vafning savaraði Bjarni því til að það hefði hann gert að beiðni föður síns, Benedikts Sveinssonar, sem ekki var á landinu. Umboð þetta er birt í DV í dag og taldi Bjarni það vera undarlegt þar sem einungis eitt eintak hefði verið til af því og það hefði farið í bankann.

Ítarleg umfjöllun er um lúxusturninn í Makóa í DV í dag. Þar kemur jafnframt fram að tryggingafélagið Sjóvá tapaði þremur milljörðum króna á braskinu í Makóa. Félagið fór í þrot og þurfti ríkið að leggja því til 12 milljarða króna. Þannig var það almenningur á Íslandi sem tók á sig þriggja milljarða tjónið vegna turnsins. Það samsvarar 10 þúsund krónum á hvern einasta Íslending.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.