ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.1° 12m/s WSW

Gerendur eineltis vantar útrás

Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@dv.is
16:00 › 11. desember 2009
Einelti skilur eftir sig djúp ör og eru margir alla ævi að vinna sig í gegnum eftirköstin. Myndin er uppstillt.

Einelti skilur eftir sig djúp ör og eru margir alla ævi að vinna sig í gegnum eftirköstin. Myndin er uppstillt. Photos.com

„Foreldrar verða að taka ábyrgð á börnunum sínum og þekkja einkenni eineltis til að geta tekist á við það. Ef foreldrar eru meðvitaðir um einelti og firra sig ekki ábyrgð tel ég að samfélagið sé í betri málum,“ segir Sjöfn Þórðardóttir, formaður Heimilis og skóla.

Sjöfn bendir foreldrum á að leita sér ráðgjafar ef grunsemdir vakna um einelti. Hún segir það einnig mikilvægt að foreldrar þeirra barna sem leggja í einelti séu meðvitaðir um úrræði til að stöðva það.

„Þau börn sem leggja í einelti eru oft skapbráð, fljótfær og sterkir, vinsælir persónuleikar sem þurfa ögrandi verkefni. Það þarf að veita þeim verkefni þannig að þau hafi nóg að gera og fái útrás. Það er mjög mikilvægt að foreldrar leiti sér ráðgjafar ef þeir hafa minnsta grun um að barnið þeirra sé að valda sársauka hjá öðrum börnum. “


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.