ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.6° 11m/s WSW

Frægar goðsagnir hraktar í nýrri bók

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
23:00 › 11. desember 2009
Karlar hugsa varla um kynlíf á sjö sekúndna fresti.

Karlar hugsa varla um kynlíf á sjö sekúndna fresti. Mynd Photos

Búist er við að ný bók eftir tvo bandaríska lækna muni njóta vinsælda um jólin í Bandaríkjunum – og víðar. Í henni eru vinsælar goðsagnir um líkamlega heilsu fólks hraktar. Til dæmis er það bull og vitleysa, samkvæmt höfundum bókarinnar, að þú fitnir af því að borða um miðja nótt.

Höfundar bókarinnar starfa báðir við læknavísindadeild Indiana-háskóla. Breska blaðið Telegraph tekur saman nokkur dæmi úr bókinni.

1. Að borða á næturna gerir þig feitan. Samkvæmt höfundum bókarinnar þyngist fólk aðeins af því að innbyrða fleiri hitaeiningar en það brennir. Þannig eru tengsl á milli offitu og þess hvað þú borðar oft eða sjaldan yfir daginn. Líkaminn hægir á brennslunni, ef borðað er sjaldan, sem leiðir af sér færri brenndar hitaeiningar. Skiptir engu máli hvenær dags er borðað – aðeins að þú innbyrðir jafn margar hitaeingar og þú brennir.

2. Ef þú gleypir tyggjó geymist það í maganum á þér í sjö ár. Þó tyggjó sé ómeltanlegt hefur líkaminn sínar aðferðir til að losa sig við það. Þannig tekur það ekki svo langan tíma að fara út með hægðum eftir að þú gleypir það.

3. Karlar hugsa um kynlíf á sjö sekúndna fresti. Ef við gefum okkur að meðalmaðurinn sé vakandi sextán klukkustundir á sólarhring þyrfti sá hinn sami að hugsa um kynlíf 57 þúsund sinnum á þeim tíma sem þýðir að afar lítill tími er til að hugsa um aðra hluti. En karlmenn eru karlmenn.

4. Að lesa í myrkri skemmir í þér sjónina. Samkvæmt höfundum bókarinnar eru engar rannsóknir til sem renna stöðum undir þá kenningu. Þó getur viðkomandi fundið fyrir tímabundnum óþægindum á eftir sem lagast fljótt aftur án skaðlegra afleiðinga.

5. Þú gleypir átta köngulær á ári í svefni. Samkvæmt höfundum bókarinnar hafa köngulær ekki minnstan áhuga á að fara upp í þig. Þá eru afar fáir sem sofa með opinn munninn.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.