Í bæklingnum Einelti - góð ráð til foreldra frá samtökunum Heimili og skóla er að finna gagnlegar upplýsingar fyrir foreldra um einelti. Í bæklingnum er meðal annars tafla þar sem einkenni barna sem lögð eru í einelti eru útlistuð.
Er barnið mitt lagt í einelti?
1. Þegar barnið kemur heim úr skóla eða tómstundastarfi með skítug, blaut eða rifin föt, skemmdar námsbækur eða segist hafa „týnt“ einhverju án þess að geta gert almennilega grein fyrir því sem gerðist.
2. Barnið getur ekki gefið trúverðuga skýringu á mari, skeinum, sári eða skurðum sem það hefur hlotið.
3. Bekkjarfélagar/leikfélagar koma ekki lengur heim með barninu og það leikur sér minna með þeim eftir skóla.
4. Barnið langar ekki – og er jafnvel hrætt við – að fara í skólann og ber við vanlíðan af einhverju tagi.
5. Einkunnir verða lélegri og áhugi á skólanum dvínar.
6. Barnið velur sér undarlega leið heim úr skóla.
7. Barnið er niðurdregið, virðist óhamingjusamt eða er þunglynt.
8. Barnið fær reiðiköst og missir stjórn á sér.
9. Barnið er oft með magapínu, litla matarlyst eða höfuðverk.
10. Barnið sefur illa, fær martraðir og grætur jafnvel í svefni.
11.Barnið hnuplar eða biður um meiri peninga heima (til að blíðka þá sem leggja það í einelti).





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun