Skilanefnd Glitnis hótaði því að fara í mál við Bjarna Ármannsson, fyrrverandi bankastjóra Glitnis. Þess vegna ákvað Bjarni að endurgreiða bankanum 600 milljónir króna eins og greint var frá í gær. Hótaði skilanefndin að leita réttar síns og fá samningi þeim sem Bjarni gerði við fyrrverandi stjórn Glitnis um sölu á bréfum hans í bankanum á yfirverði rift.
Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld.
Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, staðfesti þetta í samtali við Stöð 2. Bankinn notaði nýfallinn Hæstaréttardóm í máli Vilhjálms Bjarnasonar sem vopn. Þar var tekist á um kaup bankans á hlutabréfum Bjarna og sagði Árni að þar hafi komið skýrt fram að félagið sjálft gæti leitað réttar síns gagnvart áðurnefndum gjörningi. Því hafi nefndin ákveðið að sækja að Bjarna.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna