Catalina Mikue Ncogo var í dag úrskurðuð í áframhaldandi gæsluvarðhald til 22. desember. Catalina er grunuð um aðild að mansali og að hafa haft milligöngu um vændi. Hún var handtekin í síðustu viku, daginn eftir að tveggja og hálfs árs dómur yfir henni var kveðinn upp, ásamt konu um tvítugt.
Yngri konunni var hinsvegar sleppt þar sem rannsóknarhagsmunir voru ekki lengur fyrir hendi hvað varðar hennar þátt í málinu. Eins og Catalina er hún íslenskur ríkisborgari.
Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að rannsókn málsins miði vel en henni sé þó hvergi nærri lokið. Rannsóknin hefur staðið yfir undanfarnar vikur en í tengslum við hana lokaði lögreglan fyrir vændisstarfsemi í húsi í miðborginni.
Að minnsta kosti þrjár aðrar konur koma við sögu í málinu en þær eru taldar hafa lagt stund á vændi. Umræddar konur eru allar á fertugsaldri og af erlendu bergi brotnar. Mál einnar þeirrar er jafnframt rannsakað sem mansalsmál en konurnar þrjár hafa verið færðar til skýrslutöku hjá lögreglu. Rannsóknin tekur einnig til þeirra sem keyptu kynlífsþjónustuna sem veitt var og hafa nokkrir verið yfirheyrðir vegna þessa.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna