ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Bjarni Ben krafinn svara um lúxusturn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:59 › 11. desember 2009
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, þurfti að svara fyrir umdeilt fjárfestingarævintýri á miðstjórnarfundi flokksins.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, þurfti að svara fyrir umdeilt fjárfestingarævintýri á miðstjórnarfundi flokksins.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokkksins, var á miðstjórnarfundi flokksins í dag krafinn svara um aðild sína að viðskiptum með lúxusíbúðaturninn í Makaó í Asíu. Það var Grímur Gíslason, formaður kjördæmisráðs Suðurkjördæmis, sem vildi fá skýringar formannsins vegna frétta DV um málið í vikunni.

Bjarni svaraði því sama til og í fjölmiðlum að hann hefði ekki þekkt til verkefnisins og ekkert komið að ákvörðunum þótt hann hefði verið stjórnarformaður í BNT sem var stór hluthafi í Vafningi ehf. sem fjárfesti í turninum.

Aðspurður um það að hann fékk og framvísaði umboði til að veðsetja vafning savaraði Bjarni því til að það hefði hann gert að beiðni föður síns, Benedikts Sveinssonar, sem ekki var á landinu. Umboð þetta er birt í DV í dag og taldi Bjarni það vera undarlegt þar sem einungis eitt eintak hefði verið til af því og það hefði farið í bankann.

Ítarleg umfjöllun er um lúxusturninn í Makóa í DV í dag. Þar kemur jafnframt fram að tryggingafélagið Sjóvá tapaði þremur milljörðum króna á braskinu í Makóa. Félagið fór í þrot og þurfti ríkið að leggja því til 12 milljarða króna. Þannig var það almenningur á Íslandi sem tók á sig þriggja milljarða tjónið vegna turnsins. Það samsvarar 10 þúsund krónum á hvern einasta Íslending.
Ekki náðist í Grím Gíslason.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.