ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.1° 12m/s WSW

Ásdís Rán heppin að halda lífi

Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@dv.is
16:20 › 11. desember 2009
Ásdís Rán var aðeins fjórtán ára þegar Björn Blöndal tók fyrstu myndirnar af henni.

Ásdís Rán var aðeins fjórtán ára þegar Björn Blöndal tók fyrstu myndirnar af henni. Björn Blöndal

Ásdís Rán Gunnarsdóttir ákvað fjórtán ára gömul að verða fyrirsæta. Sama ár lenti hún í alvarlegu bílslysi og var nær dauða en lífi. Eygló Gunnþórsdóttir, móðir Ásdísar, segir hana hafa verið heppna að halda lífi.

„Það var hræðilegt þegar var keyrt á hana. Hún var að hlaupa yfir götu rétt fyrir ofan Laugardalshöllina þegar bíll keyrði á hana á fullri ferð. Hún kastaðist yfir götuna og er enn að glíma við bakmeiðsli. Hún var bara heppin að halda lífi,“ segir Eygló.

Aðspurð um hvernig henni hafi litist á framaval dóttur sinnar segir Eygló að hún hafi aldrei óttast um að hún gæti ekki spjarað sig.

„Unglingar segja ýmislegt sem maður veltir sér ekki upp úr en ég átti alveg eins von á því að hún myndi fara svona langt. Ég þekki hana það vel og veit að ef hún ákveður eitthvað hættir hún ekki fyrr en henni tekst það. Hún þrífst ekki öðruvísi en á fullu. Hún er ekki ljónynja fyrir ekki neitt.“

Ítarleg nærmynd um Ásdísi Rán er í helgarblaði DV.


Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.