Maðurinn í brúnni. Davíð Oddsson var seðlabankastjóri á því tímabili sem um er fjallað í skýrslu Ríkisendurskoðunar.
Ríkisendurskoðun hefur birt skýrslu sína um endurskoðun ríkisreiknings fyrir árið 2008. Þar er meðal annars fjallað um tap Seðlabanka Íslands vegna veðlána hans til fjármálafyrirtækja á árinu 2008. Lánveitingar Seðlabankans til fjármálafyrirtækja eru gagnrýndar og segir Ríkisendurskoðun að ýmsum spurningum sé enn ósvarað varðandi þær.
„Fyrir liggur að hinir föllnu bankar öfluðu sér lausafjár með lánum frá minni fjármálafyrirtækjum sem aftur fengu lán frá Seðlabankanum gegn ótryggðum bréfum. Í ágúst 2008 herti bankinn reglur sínar um veðtryggingar og setti þar með skorður við þessari leið bankanna til að útvega sér lausafé. Að mati Ríkisendurskoðunar má spyrja af hverju Seðlabankinn brást ekki fyrr við enda hefði það getað dregið úr því tjóni sem hann og ríkissjóður urðu fyrir vegna bankahrunsins,“ segir í tilkynningu frá Ríkisendurskoðun.
Hvers vegna var ekki brugðist við leik bankanna?
„Seðlabanki Íslands varð fyrir verulegu tjóni á árinu 2008 vegna ótryggra veðlána hans
til fjármálafyrirtækja. Í árslok námu kröfur bankans vegna slíkra lána alls 345,0 ma.kr.
Tap bankans nam 75,0 ma.kr. en ríkissjóður yfirtók 270,0 ma.kr. Fyrir liggur að hinir
föllnu bankar öfluðu sér lausafjár m.a. með því að taka lán hjá minni
fjármálafyrirtækjum sem aftur fengu lán hjá Seðlabankanum gegn ótryggðum bréfum.
Settar voru skorður við þessari leið bankanna til lausafjáröflunar í ágúst þegar
Seðlabankinn herti kröfur sínar um veðtryggingar. Að mati Ríkisendurskoðunar má
spyrja hvers vegna hann brást ekki fyrr við þessum „leik‘‘ bankanna og herti kröfur um
veð gegn lánum til minni fjármálafyrirtækja. Að mati Ríkisendurskoðunar hefði þetta
getað dregið úr því tjóni sem ríkissjóður og Seðlabankinn urðu fyrir við fall bankanna.“
Skýrsla Ríkisendurskoðunar í heild sinni.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir