Lögregla hefur nú gefið út ákæru á hendur hinni 98 ára gömlu Lauru Lundquist. Hún er grunuð um að hafa myrt 100 ára gamlan herbergisfélaga sinn. Mynd Photos
98 ára gömul kona hefur verið ákærð fyrir að myrða 100 ára gamlan herbergisfélaga sinn á hjúkrunarheimili í New Bedford í Massachusetts í Bandaríkjunum.
Lík hinnar hundrað ára gömlu Elizabeth Barrow fannst í herberginu þann 24. September síðastliðinn og var búið að vefja plastpoka utan um háls hennar. Leikur grunur á að herbergisfélagi hennar, hin 98 ára gamla Laura Lundquist, hafi kæft hana.
Í fyrstu grunaði lögreglu að konan hefði fyrirfarið sér en eftir að krufning var framkvæmd á líkinu kom í ljós að hún hafði verið myrt. Sonur Barrow segir í samtali við Fox News að Lundquist hafi kvartað yfir móður hans vegna tíðra heimsókna fjölskyldumeðlima hennar. Þá hafi hún margsinnis hótað henni.
Konurnar höfðu verið herbergisfélagar í ár og segir sonur hinnar látnu að hann hafi margsinnis beðið starfsfólk um að móðir hans yrði flutt í annað herbergi. Starfsfólkið svaraði því hinsvegar alltaf til að þeim kæmi mjög vel saman. Nú hefur lögregla gefið út ákæru á hendur Lundquist vegna morðsins á Barrow.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung