Elin Nordegren, eiginkona Tiger Woods, ætlar að standa með eiginmanninum þrátt fyrir ótal fullyrðingar þess efnis að hann hafi verið henni ótrúr. Helsti hvati Nordegren fyrir þessu eru börnin þeirra tvö.
Nordegren og Woods gengu í það heilaga árið 2004 og eiga saman tveggja ára dóttur og tíu mánaða son.
Vinir Nordegren segja hana miður sín yfir þeim fjölda kvenna sem stigið hafa fram í sviðsljósið og haldið fram að hafa átt í ástarsambandi við kylfinginn. Þrátt fyrir það ætli hún að láta reyna á hjónabandið.
„Hún er sjálf skilnaðarbarn og það er ekki eitthvað sem hún vill leggja á börnin sín,“ segir ónafngreindur vinur hennar í tímaritinu People. „Hún trúir því fram í rauðan dauðann að foreldrar eigi að vera saman barnanna vegna.“
Meintir vinir Nordegren segja að Woods hafi loksins sagt henni allan sannleikan varðandi hliðarspor sín.
Ein „vinkona“ Tigers hefur opinberlega beðist afsökunar á þeim skaða sem málið hefur valdið þeim. Það er barþernan Jaimee Grubbs.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung