ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.3° 7m/s ESE

Stelpurnar okkar í Sjónvarpinu í kvöld

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
19:38 › 1. desember 2009

Ríkissjónvarpið sýnir að loknu Kastljósi í kvöld klukkan 20.20 heimildarmyndina Stelpurnar okkar sem vakti mikla athygli þegar hún var frumsýnd í Háskólabíói í sumar. Þóra Tómasdóttir, dagskrárgerðarkona í Kastljósi, leikstýrði myndinni sem hún segir á Facebook-síðu sinni í dag að sé mynd sem hjálpar „okkur að öðlast trú á mannkynið á ný.“

Stelpurnar okkar fjallar um áföll og sigra íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu og leið þess á lokakeppni EM. Þegar Erpur Eyvindarson, kvikmyndagagnrýnandi DV, gagnrýndi myndina í sumar sagði hann meðal annars að fótbolta- og kvikmyndastelpur hefðu hér skilað af sér gríðarlega „mikilvægu stykki“ sem ætti erindi við alla, ekki síst þá sem vilji leiðrétta stöðu kvennafótbolta á Íslandi.

„Maður sér hve miklu stelpurnar fórna, of oft fyrir hálftómum áhorfendapöllum eins harðasta vígis karlrembu og pungfýlu. Stelpurnar okkar munu ná að sigra það vígi með því einfaldlega að gera það sem þær gera best, að spila góðan bolta. Því íslenska kvennalandsliðið er nefnilega ekkert „kjellingakjaftæði“,“ skrifaði Erpur um myndina.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.