Strippstaður KSÍ: Ráðherra krefst skýringa
Katrín, ráðherra íþróttamála, sendir KSÍ formlegt erindi síðar í dag.
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, fer fram á fullnægjandi skýringar af hálfu forsvarsmanna Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ, vegna heimsóknar fjármálastjóra samtakanna á strippstað í Sviss. „Við viljum fá það á hreint hvernig þetta geti hreinlega gerst,“ segir Katrín sem sendir KSÍ formlegt erindi síðar í dag.
Pálmi Jónsson, fjármálastjóri KSÍ, glataði 3,2 milljónum króna, á þáverandi gengi, af kreditkorti sínu og KSÍ á súlustaðnum Rauðu myllunni, Moulin Rouge, í Zürich í Sviss árið 2005. Það hefur verið staðfest að Pálmi heimsótti staðinn en hann fullyrðir að milljónirnar hafi verið teknar af kortunum í leyfisleysi.
„Við óskum eftir skýringum á þessu enda er þetta mjög skrítið allt saman. Að fjármálastjórinn sé með kort samtakanna á stað sem þessum er ekki í lagi. Viðkomandi var auðvitað í opinberri ferð og starfsfólk samtakanna gegnir hlutverki fyrirmynda. Í ljósi þess að samtökin gegna mikilvægu uppeldishlutverki, og þiggja auðvitað almannafé, þá viljum við fá fullnægjandi skýringar á þessu atviki,“ segir Katrín.
Þriðjudagur 24. nóvember 2009 kl 23:56
Katrín fyrirgefur klámbúlluheimsókn
Mánudagur 23. nóvember 2009 kl 20:47
Strippstaður KSÍ: Niðurstaðan fordæmd
Fimmtudagur 19. nóvember 2009 kl 19:47
KSÍ mun ekki aðhafast neitt – biður þjóðina afsökunar
Fimmtudagur 19. nóvember 2009 kl 18:35
KSÍ: Kampavínsfundur fyrir luktum dyrum
Fimmtudagur 19. nóvember 2009 kl 09:17
Strippstaður KSÍ: Fjórðungur stjórnar telur brottvikningu hugsanlega
Miðvikudagur 11. nóvember 2009 kl 12:09
Strippheimsókn ekki einsdæmi
Mánudagur 9. nóvember 2009 kl 19:48
Formaður KSÍ: „Hugsanlega sofnaði hann á staðnum“
Mánudagur 9. nóvember 2009 kl 13:32
Geiri býður KSÍ-menn velkomna á Goldfinger
Mánudagur 9. nóvember 2009 kl 10:56
Gillz: Allir alvöru karlmenn fara á strippbúllur
Mánudagur 9. nóvember 2009 kl 10:15
Strippstaður KSÍ: Eigandinn í Úkraínu að finna nýjar stelpur
Mánudagur 9. nóvember 2009 kl 09:00
Fjármálastjóri KSÍ: „Drekk ekki einu sinni kampavín“
Laugardagur 7. nóvember 2009 kl 15:49
Vilja að fjármálastjóri KSÍ víki
Föstudagur 6. nóvember 2009 kl 17:00
Þarna tapaði fjármálastjóri KSÍ milljónum
Fimmtudagur 5. nóvember 2009 kl 19:15







