ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW

Gillz: Allir alvöru karlmenn fara á strippbúllur

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
10:56 › 9. nóvember 2009
Egill Einarsson ver heimsókn KSÍ-mannsins á strippbúllu í Sviss árið 2005.

Egill Einarsson ver heimsókn KSÍ-mannsins á strippbúllu í Sviss árið 2005.

„Það er alveg magnað hvað feministar haga sér alltaf eins og hálfvitar,“ skrifar Egill Einarsson, betur þekktur sem Gillzenegger, á bloggsíðu sína í dag. Þar lýsir Gillz skoðun sinni á þeirri ályktun Feministafélagsins að stjórn KSÍ og fjármálastjórinn Pálmi Jónsson verði að segja af sér eftir ævintýri þess síðarnefnda á strípistað í Sviss árið 2005.

Gillz er þeirrar skoðunar að ekker sé sjálfsagðara en að skella sér á strippstað.

„Maðurinn er rændur og síðan vilja feministar að hann missi vinnuna líka!“ segir Gillz þar sem hann tekur upp varnir fyrir fjármálastjórann.

Þá nýtir hann tækifærið til að kynna nýja bók sína sem kemur út í mánuðinum Mannasiðir Gillz.
Þar er einmitt kafli sem heitir „Hvernig áttu að haga þér á strippbúllu“

Egill birtir útdrátt úr kaflanum á bloggsíðu sinni á vef Pressunnar í dag þar sem hann segir að allir alvöru karlmenn fari einhvern tíma á lífsleiðinni á nektardansstað.

„Auðvitað eru til menn með leggöng eins og Steingrímur J. Sigfússon sem eru á móti strippbúllum en hann er ein af þessum risaeðlum sem eru að deyja út,“ skrifar Gillzenegger.

Færsla Egils í heild sinni.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.