Ásgeir Þór Davíðsson segir KSÍ-menn velkomna með kortin sín á Goldfinger. Enda virðist heimildin rífleg á þeim kortum.
Ásgeir Þór Davíðsson, eigandi súlustaðarins Goldfinger, skilur ekkert í fullyrðingum feminist varðandi súlustaðaferð fjármálastjóra KSÍ . Hann býður alla forsvarsmenn KSÍ hjartanlega velkomna til sín á Goldfinger.
„Gagnrýni femínistanna er alveg út í hróa. Maðurinn má auðvitað fara að skemmta sér inni á súlustað þarna úti, hvað ætli hann hafi glatt margar konur með þessari upphæð? Hann hefur ábyggilega bjargað jólunum fyrir margar fjölskyldur. Embætti mannsins skiptir engu máli, ég átta mig ekki alveg á því. Eigum við að velja hvaða staði hann fær að fara á ef hann vill skemmta sér vel?“ segir Ásgeir Þór.
„Ég hvet hreinlega KSÍ-gæjana til að kíkja með kortin á Goldfinger og eyða þar peningum,“ segir Ásgeir í DV í dag.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir