Fjármálastjóri KSÍ: „Drekk ekki einu sinni kampavín“

Svissneskur fjölmiðill fullyrðir að fjármálastjórinn hafi spreðað í rándýrar kampavínsflöskur á Moulin Rouge.

Svissneskur fjölmiðill fullyrðir að fjármálastjórinn hafi spreðað í rándýrar kampavínsflöskur á Moulin Rouge.

Mánudagur 9. nóvember 2009 kl 09:00

Höfundur: Trausti Hafsteinsson (trausti@dv.is)

Nánar um málið í DV í dag.

Pálmi Jónsson, fjármálastjóri Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ, lýsir alfarið yfir sakleysi sínu um viðskipti við súlustað í Sviss. Femínistafélag Íslands krefst afsagnar stjórnenda KSÍ sem gefa lítið út á málflutninginn. Ævintýrið kostar Pálma nærri tvær milljónir króna sem hann segir dýrt spaug.

„Ég er algjörlega saklaus, það er alveg á hreinu. Af minni hálfu fóru þessi viðskipti ekki fram heldur var kortið misnotað. Ég hef ekki verið að stunda svona staði, þekki ekkert hvað þar fer fram og drekk ekki einu sinni kampavín,“ segir Pálmi Jónsson, fjármálastjóri Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ.

Pálmi glataði 3,2 milljónum króna, á þáverandi gengi, af kreditkorti sínu og KSÍ á súlustaðnum Rauðu myllunni, Moulin Rouge, í Zürich í Sviss árið 2005. Sé upphæðin reiknuð á núverandi gengi nemur upphæðin nærri 8 milljónum. Það hefur verið staðfest að Pálmi heimsótti staðinn en hann fullyrðir að milljónirnar hafi verið teknar af kortunum í leyfisleysi. Eftir að kortanotkunin kom í ljós lýsti Pálmi strax yfir sakleysi sínu og bauð KSÍ til að borga brúsann. Í kjölfarið höfðaði hann mál úti í Sviss og krafðist endurgreiðslu þeirra 3,2 milljóna króna sem rukkað var um. Af þeim voru 1,5 milljónir bakfærðar en eftirstöðvarnar, tæpar tvær milljónir, þarf Pálmi að greiða.


Nánar um málið í DV í dag. Kaupa áskrift!


Senda á Facebook



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

Þriðjudagur 24. nóvember 2009 kl 23:56

Katrín fyrirgefur klámbúlluheimsókn

Mánudagur 23. nóvember 2009 kl 20:47

Strippstaður KSÍ: Niðurstaðan fordæmd

Fimmtudagur 19. nóvember 2009 kl 19:47

KSÍ mun ekki aðhafast neitt – biður þjóðina afsökunar

Fimmtudagur 19. nóvember 2009 kl 18:35

KSÍ: Kampavínsfundur fyrir luktum dyrum

Fimmtudagur 19. nóvember 2009 kl 09:17

Strippstaður KSÍ: Fjórðungur stjórnar telur brottvikningu hugsanlega

Miðvikudagur 11. nóvember 2009 kl 12:09

Strippheimsókn ekki einsdæmi

Mánudagur 9. nóvember 2009 kl 19:48

Formaður KSÍ: „Hugsanlega sofnaði hann á staðnum“

Mánudagur 9. nóvember 2009 kl 13:32

Geiri býður KSÍ-menn velkomna á Goldfinger

Mánudagur 9. nóvember 2009 kl 11:30

Strippstaður KSÍ: Ráðherra krefst skýringa

Mánudagur 9. nóvember 2009 kl 10:56

Gillz: Allir alvöru karlmenn fara á strippbúllur

Mánudagur 9. nóvember 2009 kl 10:15

Strippstaður KSÍ: Eigandinn í Úkraínu að finna nýjar stelpur

Laugardagur 7. nóvember 2009 kl 15:49

Vilja að fjármálastjóri KSÍ víki

Föstudagur 6. nóvember 2009 kl 17:00

Þarna tapaði fjármálastjóri KSÍ milljónum

Fimmtudagur 5. nóvember 2009 kl 19:15

Fjármálastjóri KSÍ glataði milljónum á næturklúbbabrölti