Femínistafélag Íslands krefst þess að fjármálastjóra KSÍ, Pálma Jónssyni, verði vikið úr starfi. Pálmi komst í fréttirnar í vikunni eftir að upp komst að hann hafði notað greiðslukort KSÍ á strippstað í Sviss. Stjórn KSÍ hefur staðið þétt við bakið á fjármálastjóranum í málinu.
Yfirlýsing Femínistafélagsins vegna málsins:
Femínistafélag Íslands fordæmir framferði fjármálastjóra KSÍ og viðbrögð
sambandsins í kjölfarið og krefst þess að stjórnin segi af sér og
fjármálastjóranum verði vikið úr starfi hið fyrsta.
Fréttir af heimsókn fjármálastjórans á súlustað í Sviss hafa vakið
verðskuldaða athygli í samfélaginu á undanförnum dögum, enda fáheyrt að
menn sem gegni trúnaðarstörfum fyrir samtök sem kenna sig við forvarnir og
heilbrigt líferni verði uppvísir að iðju sem tengist skipulagðri
glæpastarfsemi, misnotkun á bágri stöðu kvenna og það með kreditkort
vinnuveitandans upp á vasann.
Knattspyrnusamband Íslands er regnhlífarsamband fyrir stærstu íþrótt á
Íslandi sem á að vera uppbyggileg og þroskandi fyrir fólk á öllum aldri.
Eðlileg og sjálfsögð krafa samfélagsins er að stjórn þess og fólk sem þar
gegnir trúnaðarstörfum hagi sér í samræmi við þá ábyrgð sem það ber.
Árið 2006 sendi Íþróttasamband Íslands frá sér yfirlýsingu, þar sem vændi
og mansal var fordæmt í tengslum við heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem
fram fór í Þýskalandi. Þar segir m.a. „Megininntak íþrótta er mannleg
reisn og heilbrigt líferni.“ Þarft er að rifja upp í þessu samhengi að KSÍ
neitaði að leggja baráttunni gegn vændi og mansali lið á mótinu þrátt
fyrir fjölmargar áskoranir, m.a. frá 14 kvennasamtökum og jafnréttisnefnd
Reykjavíkur.
Ljóst er að Knattspyrnusamband Íslands hefur brugðist hlutverki sínu
stórkostlega. Áhugafólk um knattspyrnu og íþróttir á betra skilið.
Virðingarfyllst,
Ráð Femínistafélags Íslands




Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 

EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision
Vítamín í vörina: Tóbaksgjald hindrar innflutning
Reykjavíkurborg dæmd til að greiða Frjálslyndum 6,7 milljónir