ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.8° 6m/s SE

Þjófur á flótta með húmor

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
20:20 › 6. nóvember 2009
Nýja myndin. Maynard stillir sér upp við lögreglubílinn.

Nýja myndin. Maynard stillir sér upp við lögreglubílinn.

  • Gamla myndin þykir öllu verri en sú nýja.

    Gamla myndin þykir öllu verri en sú nýja.

Breski glæpamaðurinn Matthew Maynard, sem eftirlýstur var fyrir innbrot og aðra smáglæpi, var ekki alveg nógu sáttur við fangamyndina sem lögreglan sendi til fjölmiðla til að lýsa eftir honum. Hann brá því á það ráð að stilla sér upp fyrir framan lögreglubifreið og senda nýja mynd til notkunar.

Myndin af Maynard var birt í South Wales Evening Post um síðustu helgi en þar var hann ásamt sjö öðrum. Starsfólki blaðsins brá því heldur betur í brún þegar þau fengu senda nýja mynd af Maynard og var hún frá honum sjálfum. Hann hringdi því á undan sér og bað blaðið vinsamlegast um að nota nýja mynd. Að sjálfsögðu rataði myndin af honum á forsíðu blaðsins daginn eftir og sagan fylgdi með.

Svo virðist sem lögreglan hafi lítinn húmor fyrir uppátæki Maynards ef marka má ummæli lögregluþjóns í blaðinu. „Hann heldur að hann sé voðalega sniðugur með því að sýna sig svona. Við náum honum bráðlega.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.