Eins og greint var frá á DV.is glataði fjármálastjóri Knattspyrnusambands Íslands nokkrum milljónum af kreditkorti sínu og KSÍ á næturlífinu í Zürich í Sviss árið 2005. Fjármálastjórinn og KSÍ segja hann hafa verið fórnarlamb skipulagðrar glæpastarfsemi þar sem 3,5 milljónir voru teknar af kortum hans í leyfisleysi. Svissneskur fjölmiðill lýsir málinu þó þannig að fjármálastjórinn hafa spreðað í hverja rándýra kampavínsflöskuna á fætur annarri í fylgd þriggja rússneskra stúlkna. Á heimasíðu strippstaðarins Moulin Rouge, þar sem meint brot áttu sér stað, gefur meðal annars að líta fáklæddar dömur í hjarta rauða hverfisins í Zürich.
Fjármálastjórinn, Pálmi Jónsson, sat uppi með 67 þúsund franka kreditkortareikning eftir næturgleðina. Hann höfðaði mál gegn forsvarsmanni staðarins Moulin Rouge þar sem hann taldi sig hafa verið svikinn. Bótakröfu hans var vísað frá dómi í Zürich í vikunni þar sem ekki þótti sannað að hann væri fórnarlamb svika þar sem hann hafi kvittað undir allar nótur. Kampavínsflaskan á staðnum kostar um 800 svissneska franka að því er fram kom á svissnesku fréttasíðunni 20 Minuten á miðvikudaginn.
KSÍ bar þó engan fjárhagslegan skaða af málinu enda var Pálma gert að greiða aftur þann hlut sem féll á kort sambandsins. Upphæðin nam 3,5 milljónum króna á gengi ársins 2005, en í dag nemur upphæðin 8,2 milljónum. Þess ber þó að geta að forsvarsmaður strippstaðarins var í kjölfar málsins dæmdur fyrir stórfelld fjársvik. Upp komst um þá svikamyllu við rannsókn á máli fjármálastjórans íslenska.
Á vefsíðu Moulin Rouge eru meðal annars birtar nektarmyndir af þeim stúlkum sem þar koma fram, en klúbburinn er sagður kabarettklúbbur þar sem boðið er upp á erótískan dans.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 


Safnað fyrir nýfædda stúlku sem berst fyrir lífi sínu
Reiknikúnstir lífeyrissjóðanna „óþolandi og ólíðandi“
EasyJet mun fljúga allt árið
Meintar deilur látinna feðra: Vildi losna við dómara
Útvarpsstjóri: Raunhæfur möguleiki að sniðganga Eurovision