Franska lögreglan gerir nú allt sem í hennar valdi stendur til að hafa upp á starfsmanni peningaflutningafyrirtækis, sem grunaður er um að hafa stolið tæpum tveimur milljörðum króna. Svo virðist sem maðurinn hafi tæmt íbúð sína áður en hann framdi þjófnaðinn og hvarf sporlaust.
Bíllinn, sem var að flytja peninga fyrir Bank of France, hvarf í snemma í gær í frönsku stórborginni Lyon. Þrír voru þá í bílnum og voru þeir á leið í útibú eins af bönkum Bank of France. Tveir fóru inn í bankann á meðan bílstjórinn beið. Þegar tvímenningarnir snéru til baka var bíllinn hinsvegar horfinn.
„Okkur grunar að bílstjórinn beri ábyrgð á þessu. Við gerðum húsleit á heimili hans en það kom okkur verulega á óvart að sjá að íbúðin hans var tóm. Ísskápurinn var tómur og við fundum enga pappíra. Við teljum að þetta hafi verið þaulskipulagt,“sagði Xavier Richaud, saksóknari í Lyon, í samtali við franska fjölmiðla í dag.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung