ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 5m/s S

Svefngengill í vanda

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:10 › 6. nóvember 2009

Þrír bandarískir karlmenn hafa verið ákærðir fyrir fólskulega líkamsárás gegn manni sem þeir fundu sofandi í íbúðinni sinni. Það væri vart í frásögur færandi nema fyrir það að maðurinn, sem svaf í íbúðinni, hafði ekkert illt í hyggju en hann glímir við það vandamál að ganga reglulega í svefni.

Atvikið átti sér stað í Iowa-borg og var svefngengillinn, sem er 21 árs, með mikla áverka á líkamanum. Hann var þó ekki talinn alvarlega slasaður eftir árásina. Hann hafði dvalið í næstu íbúð við mennina þrjá þegar hann gekk þar inn og lagðist í sófann nótt eina í lok ágúst í sumar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.