Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, hefur handsalað samkomulag við séra Gunnar Björnsson, fráfarandi sóknarprest á Selfossi. Í samkomulaginu felst að Gunnar heldur áfram störfum fyrir Biskupsstofu næstu fimm árin, sem sérþjónustuprestur, en ætlast er til þess að presturinn starfi heima hjá sér. Séra Gunnar heldur fullum launum og fær því greiddar 42 milljónir króna frá biskupnum.
Heima fyrir mun séra Gunnar sinna ýmsum þýðingaverkefnum. Samkvæmt heimildum DV hefur hann verið með nærri 700 þúsund krónur í laun á mánuði, þegar allar aukagreiðslur eru teknar með í reikninginn. Sé launin reiknuð út samningstímann gera það rúmar 40 milljónir króna.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna