„Það fer ekkert á milli mála að Ólafur Ragnar Grímsson gekk að þessu leyti miklu lengra í þessari fyrirgreiðslu sinni við útrásina en allir aðrir þjóðhöfðingjar sem ég þekki til hafa gert,“ segir Sigurður Gylfi. Mynd Heiða Helgadóttir
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, aðstoðaði íslensku auðmennina og naut aðstoðar þeirra á árunum fyrir íslenska efnahagshrunið. Ólafur hefur verið gagnrýndu mjög fyrir það og segir Sigurður Gylfi Magnússon, sagnfræðingur og háskólakennari,að vandamálið við Ólaf Ragnar sé það að hann hafi gengið miklu lengra en aðrir þjóðöfðingjar í því að þjónusta einkafyrirtæki og auðmenn.
„Mér finnst ekkert að því að forsetinn liðki til fyrir viðskiptum og menningarlífi og öðru slíku. En mér finnst það kannski vera spurning hversu langt menn eigi að ganga í þessu ... Það fer ekkert á milli mála að Ólafur Ragnar Grímsson gekk að þessu leyti miklu lengra í þessari fyrirgreiðslu sinni við útrásina en allir aðrir þjóðhöfðingjar sem ég þekki til hafa gert,“ segir Sigurður Gylfi.
Jón Ólafsson, heimspekingur og prófessor við Háskólann á Bifröst, tekur undir þessa gagnrýni á Ólaf Ragnar aðspurður hvernig hann meti stöðu Ólafs í dag: „Það má segja að ein spurning um „sekt“ eða „sakleysi“ forsetans skipti höfuðmáli um virðingu hans og embættisins. Hún er sú hvort við lítum svo á að helstu leiðtogar útrásarinnar hafi notfært sér forsetann, misnotað hann með öðrum orðum, eða hvort við teljum að hann hafi verið þátttakandi í útrásinni og beri ábyrgð á óförunum með forystumönnum í bönkum og viðskiptalífi. Spurningin er sem sagt hvort forsetinn var heldur nytsamur sakleysingi eða kaldrifjaður áhættufíkill sem hikaði ekki við að vera í forystu útrásarliðsins á erlendri grundu,“ segir Jón.
Nánar um málefni forsetans í helgarblaði DV.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna