Ritstjórn DV
ritstjorn@dv.is
Lögreglumaður á Húsavík þurfti að leita sér aðstoðar læknis eftir að hann var sleginn í andlitið af ölvuðum manni sem lögregla hafði afskipti af. Atvikið átti sér stað snemma í morgun en lögregla hafði fengið tilkynningu um að maðurinn léti ófriðlega og væri auk þess ofurölvi.
Að sögn lögreglunnar á Húsavík var maðurinn færður í fangaklefa en þegar þangað var komið réðst maðurinn á lögregluþjóninn og gaf honum hnefahögg í andlitið. Lögreglumaðurinn er óbrotinn eftir atvikið en þó blár og marinn. Árásarmaðurinn, sem er 33 ára, hefur áður komið við sögu lögreglu og má búast við kæru fyrir árásina.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Biður Kópavogsbúa afsökunar: „Pólitísk hrossakaup“
Þessir fengu listamannalaun
Hringdi í pabba eftir að hafa lent í vandræðum á Vatnajökli
Ármann verður nýr bæjarstjóri Kópavogs
Björt framtíð með framsóknarblæ