ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 5.7° 9m/s E

„Ólafur er búinn“

12:00 › 6. nóvember 2009
Störf Ólafs Ragnars Grímssonar forseta eru meðal annars til athugunar hjá rannsóknarnefnd Alþingis, en hann þykir hafa beitt sér af miklu afli í þágu einkafyrirtækja í útrás. Hér er hann ásamt eiginkonu sinni, Dorrit Moussaieff.

Sigurður Gylfi Magnússon, sagnfræðingur og háskólakennari, segir að Ólafur Ragnar Grímsson forseti hafi gengið miklu lengra en aðrir þjóðhöfðingjar í að þjónusta einkafyrirtæki og auðmenn. Hann telur að forsetinn eigi að segja af sér, en finnst ólíklegt að hann geri það.

„Ólafur er búinn; mér finnst að hann ætti að segja af sér. Forsetaembættinu væri hugsanlega hægt að bjarga ef hann segði af sér. En ég held að hann muni sitja, hanga á þessu eins og hundur á roði, og að í kjölfarið verði þetta embætti lagt niður,“ segir Sigurður Gylfi.

Ítarlega er fjallað um stuðning Ólafs Ragnars við útrásarvíkinga og stöðu hans í dag í helgarblaði DV.

Nánar um málið í DV - Kaupa áskrift!

Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.