ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.4° 10m/s WSW

Ógnaði starfsmanni með hníf í ránstilraun

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:35 › 6. nóvember 2009
Vopnaður ræningi hafði ekki árangur sem erfiði í verslun í Reykjavík í gær.

Vopnaður ræningi hafði ekki árangur sem erfiði í verslun í Reykjavík í gær.

Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn í verslun í Reykjavík síðdegis í gær. Var hann vopnaður hnífi og ógnaði starfsmanni og viðurkenndi að tilgangur hans hefði verið að ræna peningum.

Tveir starfsmenn yfirbuguðu ræningjann og héldu honum föstum þar til lögregluna bar að garði. Maðurinn, sem var í annarlegu ástandi, hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.