Hilmar Oddsson kvikmyndaleikstjóri vinnur nú að sjónvarpsþáttaröð og mynd byggð á skáldsögunni Vetrarferðin eftir Ólaf Gunnarsson. Þetta kemur fram í viðtali við hann í helgarblaði DV sem kom út í dag.
„Ég er að vinna að handriti fyrir hvort tveggja en hvort bara annað þeirra verði að veruleika, eða hvorugt, ræðst af fjármögnun,“ segir Hilmar sem fengið hefur handritsstyrk fyrir verkefninu. „Þetta er eins og allt sem maður gerir, kannski verður þetta aldrei að veruleika. En ég er alla vega að skrifa og svo eftir tvö, þrjú ár erum við vonandi að tala um þessa mynd.“
Vetrarferðin kom út árið 1999 og var síðasti hluti þríleiks. Fyrri bækurnar heita Tröllakirkja og Blóðakur en Vetrarferðin stendur sjálfstæð og því hyggst Hilmar eingöngu vinna með það verk.
Lesið viðtalið við Hilmar í helgarblaði DV.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Cox ekki sofið hjá í tæplega 2 ár
Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar