ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 6m/s WSW

Hetjudáð móður kostaði hana lífið

18:30 › 6. nóvember 2009
Af vettvangi í Bodmin. Húsið varð eldinum að bráð. Fox lét lífið við að bjarga syni sínum eftir árás hrekkjusvína.

Af vettvangi í Bodmin. Húsið varð eldinum að bráð. Fox lét lífið við að bjarga syni sínum eftir árás hrekkjusvína. Mynd; Daily Mail

Fimm barna móðir lét lífið við að bjarga syni sínum úr eldsvoða á heimili þeirra í Bodmin í Englandi í gær. Flugeldum hafði verið troðið inn um bréfalúguna á heimili þeirra. Það var einn piltur úr hópi hrekkjusvína sem talinn er hafa gert það en þeir höfðu lagt 17 ára son konunnar í einelti um árabil vegna þess að hann átti við námserfiðleika að stríða. Eineltið varð á endanum banvænt.

Hetjudáð móður
Hin 59 ára gamla Mary Fox forðaði 17 ára syni sínum Raum út um gluggann á annarri hæð hússins eftir að eldur hafði kviknað í útidyrahurð hússins sem síðan breiddist út. Mæðginin voru því föst inni í húsinu og ákváðu að reyna forða sé út um gluggann á efstu hæð hússins.

Nágrannar þeirra segja að einn úr hópi piltanna hafi troðið flugeldum inn um bréfalúguna á heimili þeirra og kveikt í. Mary Fox ýtti syni sínum út um gluggann sem féll niður á jörðina um eina hæð en slapp ómeiddur. Hún varð hins vegar eftir inni í húsinu sem varð eldinum að bráð.

Þegar slökkviliðið bar að garði var húsið ein rjúkandi rúst og Mary Fox fannst látin þar inni.

Lagður í einelti - lögreglan rannsakar málið
Lögreglan segir að rannsókn málsins fari fram og yfirmenn slökkviliðsins staðfesta að þeir séu að skoða hvort upptök eldsins megi rekja til flugelda að því er fram kemur á vef Daily Mail í dag.

Vinir og nágrannar segja að Raum sonur Mary Fox hafi átt við námserfiðleika að stríða og hafi verið lagður í einelti um árabil.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.