ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.3° 7m/s WSW

Harmleikur í Orlando: Skaut sex og myrti einn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
21:01 › 6. nóvember 2009
Jason Rodriguez var handtekinn á heimili móður sinnar.

Jason Rodriguez var handtekinn á heimili móður sinnar.

Fertugur verkfræðingur gerði skotárás á fyrrum vinnustað sinn í kvöld með þeim afleiðingum að einn lét lífið og sex særðust. Maðurinn, sem heitir Jason Rodriguez, var handtekinn á heimili móður sinnar í kjölfarið og veitti enga mótspyrnu. Honum var sagt upp störfum á þessum sama vinnustað fyrir um tveimur árum.

„Þetta er mikill harmleikur og gerist strax eftir harmleikinn í Fort Hood,“ segir Van Demings, lögreglufulltrúi í Orlando í samtali við Fox News. Vísaði Demings í skotárásina sem gerð var á Fort Hood-herstöðina í Texas í gær þar sem þrettán létu lífið og um 30 særðust. „Ég er bara glaður með að fleiri hafi ekki látist eða særst,“ segir hann.

Fyrirtækið sem um ræðir heitir Reynolds Smith & Hill og hefur höfuðstöðvar í einu af háhýsum viðskiptahverfis Orlando. Ekki liggur fyrir hvað manninum gekk til en Renato Gonzalez, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir að Rodriguez hafi skiljanlega ekki verið sáttur með uppsögnina fyrir tveimur árum. Þá segir fyrrum tengdamóðir hans í samtali við Fox að Rodriguez hafi verið á lyfjum vegna andlegra veikinda og hann hafi verið haldinn þráhyggju um að einhver vildi ná sér niður á honum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.