ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 5m/s WSW

Halda að Hitler hafi verið þýskur fótboltaþjálfari

10:02 › 6. nóvember 2009
Bresk skólabörn eru ekkert mjög vel að sér þegar kemur að spurningum um heimsstyrjaldirnar tvær.

Bresk skólabörn eru ekkert mjög vel að sér þegar kemur að spurningum um heimsstyrjaldirnar tvær.

Eitt af hverjum tuttugu börnum í Bretlandi, á aldrinum níu til ellefu ára, halda að nasistaleiðtoginn Adolf Hitler hafi verið þýskur fótboltaþjálfari. Sami fjöldi heldur að Helförin hafi verið gleðihátíð til að fagna lokum seinni heimsstyrjaldarinnar.

Könnunin var framkvæmd af góðgerðarsamtökunum Erskine, sem starfa í þágu hermanna sem komnir eru á eftirlaun. Tvö þúsund börn voru spurð ýmissa spurninga um heimsstyrjaldirnar tvær. Niðurstöðurnar leiddu einnig í ljós að 25 prósent barna hugsa ekkert sérstaklega um það þegar þau heyra í fréttum að hermenn hafi fallið á vígvellinum.

Þá höfðu 40 prósent barna ekki hugmynd um hvaða dagur Remembrance Day er. Sá dagur er haldinn í nóvember á hverju ári til heiðra minningu þeirra hermanna, sem börðust og féllu fyrir Bretland og bresku samveldislöndin, í fyrri heimsstyrjöldinni. „Þessar niðurstöður koma okkur verulega á óvart og sýna okkur að við höfum verk að vinna,“ segir Jim Panton, formaður Erskine.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.