ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 7m/s SSE

Gunnar Dal: Kleopatra er frábær

11:05 › 6. nóvember 2009
Kleopatra og Gunnar Dal eru góðir vinir.

Kleopatra og Gunnar Dal eru góðir vinir.

Halldór Sigurðsson, rithöfundur og skáld, betur þekktur sem Gunnar Dal, hefur ritað jákvæðar umsagnir um Kleopötru sem rithöfund. Hún hefur reglulega heimsótt Gunnar á heimili hans í fylgd með vinkonum sínum.

„Ég þekki hana og hún er alveg frábær. Kleopatra er afskaplega mennsk og er með þægilegasta fólki í viðmóti. Mér finnst hún ein yndislegasta manneskja sem ég hef séð. Hún er mjög sérkennileg og þorir að skera sig út úr hópnum. Hún er svo langt frá því að herma eftir öðrum og hún er mjög sjálfstæð persóna. Fyrir mér sker hún sig úr að því leyti að hún fagnar skynseminni og hafnar nautnalífinu. Þannig berst hún gegn því að fólk sé að njóta meira en það ræður við,“ segir Gunnar og bætir við.

„Kleopatra virðist með talsverðan hóp fylgismanna enda hefur hún verið mjög dugleg og ákveðin. Það má segja að hún sé komin með söfnuð í kringum sig sem fylgir þessari hugmynd skynseminnar. Hennar sérstaða er að þora að vera hún sjálf og þannig stendur hún eins og klettur í hafinu. Fyrir utan hvað hún er falleg og indæl kona er það einkum þessi staðreynd sem vakti aðdáun mína.“



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?