Ellefu ára stúlka er ólétt eftir 86 ára gamlan nágranna sinn. Frá þessu greina rúmenskir fjölmiðlar. Maðurinn er sagður hafa stutt dyggilega við bakið á fjölskyldunni, sem átti við fjárhagsvanda að stríða. Þess vegna hafi stúlkan oft heimsótt manninn og einskonar trúnaður og vinátta myndast milli hans og fjölskyldunnar.
En trúnaðurinn virðist ekki hafa verið meiri en svo að maðurinn hafði samfarir við stúlkuna og er hún nú ólétt. Foreldrum stúlkunnar grunaði að ekki væri allt með felldu og fóru því með stúlkuna til læknis. Í ljós kom að hún var komin fjórtán vikur á leið. Fólkið sem um ræðir býr í smáþorpi í vesturhluta Rúmeníu, Nadlac.
Læknir stúlkunnar hringdi umsvifalaust í lögregluna og fljótlega beindust spjótin að nágrannanum úr næsta húsi. Stúlkan viðurkenndi loks að maðurinn hefði nauðgað sér í nokkur skipti þegar hún heimsótti hann og hann hafi hótað henni öllu illu ef hún segði frá. Maðurinn hefur neitað sök í málinu og er nú beðið eftir niðurstöðum úr faðernisprófi til að skera endanlega úr um hvort hann sé faðirinn.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Daufdumbri telpu haldið fanginni í áratug í Bretlandi
Anonymous boða svartan mars
Hundrað þúsund einstaklingar telja sig hafna yfir lög
Þriggja ára snáði festist í sjálfsala
Eastwood sakaður um tvískinnung