ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.3° 7m/s SSE

Dularfulla majonesdrottningin

09:15 › 6. nóvember 2009

„Ég á fullt, fullt af vinum og er föðmuð alls staðar sem ég kem,“ segir Kleopatra Kristbjörg Stefánsdóttir, forstjóri Gunnars Majoness. Fortíð hennar þykir dularfull og um hana ganga sögur í gamla heimabænum Vopnafirði, þar sem hún bjó um árabil. Kleopatra á dyggan aðdáendahóp sem lítur á hana sem andlegan leiðtoga sinn. Sjálf gerir hún lítið úr áhrifamætti sínum en viðurkennir vinsældirnar.

„Ég er í grúppu sem ég kalla fjölskyldu mína og í henni eru margir af mínum bestu vinum, bæði konur og karlar. Við köllum okkur bræður og systur, stöndum saman eins og fjölskylda og segjumst vera systkin, kynnum okkur meira að segja þannig úti um allt. Mér þykir vænt um þau öll,“ segir Kleopatra Kristbjörg Stefánsdóttir, forstjóri Gunnars Majoness.

Kleopatra virðist vera andlegur leiðtogi fjölda fólks, hóps sem hún kallar fjölskylduna sína. Það segja flestir þeir viðmælendur sem DV leitaði til. Meðlimir hópsins, sem telur nokkra tugi einstaklinga og þar á meðal eigendur fyrirtækisins, kalla sig bræður og systur og ganga þeir jafnframt undir gælunöfnun innan hans.

Jón Viðarsson, sem gengur undir gælunafninu „Marteinn“ í hópnum, lýsir Kleopötru sem ákaflega góðri konu. Aðspurður vildi hann lítið ræða um fjölskylduna en viðurkenndi þó að hópurinn hittist reglulega. „Ég þekki hana ágætlega og við hittumst af og til. Hún er bara mjög góð kona en ég held að ég fari ekkert nánar út í það,“ segir Jón.

Nærmynd er af Kleopötru Kristbjörgu í helgarblaði DV



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér!


Gleymt lykilorð?

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?