Björgólfur Guðmundsson. Kaup á skuldabréfi sem hann gaf út er sagt brot á fjárfestingarstefnu Fyrirtækjabréfa Landsbankans.
Björgólfur Guðmundsson, fyrrverandi formaður bankaráðs Landsbankans, gaf út skuldabréf sem Fyrirtækjabréf Landsbankans keypti fyrir 400 milljónir króna árið 2005. Landsbankinn hefur vísað málinu til rannsóknar hjá Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra. Fjármálaeftirlitið hefur áður verið gerð grein fyrir því og Rannsóknarnefnd Alþingis fengið öll gögn er það varðar.
Fram kemur í tilkynningu sem stjórn Landsvaka hf. hefur sent Kauphöll Íslands að slitameðferð fjárfestingasjóðsins Fyrirtækjabréf Landsbankans hafi staðið yfir frá því hann lokaði þann 6. október 2008.
Sjóðurinn hafði verið starfræktur með nokkrum breytingum frá árin 1990 undir merkjum Landsbréfa og síðar Landsvaka hf. dótturfélags Landsbanka Íslands hf. og nú dótturfélags NBI hf. (Landsbankans).
Fram kemur einnig að hlutdeildarskírteinishöfum hafi verið greitt úr sjóðnum eftir því sem eignum hefur verið komið í verð.
Eins og fram kemur í fyrrnefndri tilkynningu bar sjóðnum að fjárfesta í skuldabréfum fyrirtækja, fjármálastofnana, ríkis og sveitarfélaga.
Sjóðurinn keypti engu að síður árið 2005 skuldabréf á einstakling. Andvirði þess nam 400 milljónum króna sem þá var óverulegur hluti heildareigna sjóðsins. Fram kemur í tilkynningu Landsvaka hf. að greitt var af skuldabréfinu samkvæmt samningi framan af, og síðar var hluta af eftirstöðvum skuldajafnað. Nú nema eftirstöðvar bréfsins um 190 milljónum króna.
Skuldabréfið var gefið út af Björgólfi Guðmundssyni sem var þá formaður bankaráðs Landsbanka Íslands hf. og einn aðaleigandi bankans.
Eftir bankahrunið tóku nýir stjórnendur við rekstri Landsvaka hf. og ný stjórn var skipuð. Það var mat þeirra stjórnenda sem þá tóku við, að kaup á áðurnefndu skuldabréfi væri brot á fjárfestingarstefnu sjóðsins.
Þegar ljóst varð að skuldari bréfsins myndi ekki standa skil á eftirstöðvum við lokun sjóðsins var það óhjákvæmileg niðurstaða, sem m.a. er byggð á óháðri lögfræðiúttekt, að Landsvaki yrði að bera tjónið sem af brotinu leiðir.
Hlutdeildarskírteinishafar verða því ekki fyrir tjóni af þessum sökum kemur fram á vefsíðu Landsbankans í dag..
Bankaráð NBI hf. (Landsbankans) hefur jafnframt fallist á að tryggja rekstrarhæfi Landsvaka með því að leggja félaginu til nýtt eigið fé svo öllum eiginfjárkröfum yfirvalda um reksturinn verði mætt.
Engar bókanir finnast í fundargerðum Fjárfestingaráðs Fyrirtækjabréfa Landsbankans er varða ákvörðunina um kaup á fyrrgreindu skuldabréfi. Gjörningur þessi var gerður í andstöðu við almenna starfsmenn, en þeir sem tóku um hann ákvörðun hafa allir hætt störfum fyrir bankann og Landsvaka hf. Fram kemur í tilkynninu Landsbankans að þar sé þetta atvik harmað og þau óþægindi sem það hefur valdið.
Landsbankinn hefur vísað málinu til rannsóknar hjá Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra. Fjármálaeftirlitinu hefur áður verið gerð grein fyrir því og Rannsóknarnefnd Alþingis fengið afhent öll gögn er það varða.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
„Gjörspilltir stjórnmálamenn fá aftur sín fyrri völd“
Jóhanna talaði ensku og sló í gegn
Guðmundur keypti Fjölnisveg 11
Greiddi atkvæði með „stórkostlega hættulegum“ breytingum
Tæplega hálfur milljarður til listamanna