KR-ingurinn og íþróttafréttamaðurinn Bjarni Felixson skellti sér í svínaflensusprautu, eins og svo margir landsmenn hafa gert. Bjarni þykir mikið hörkutól og kvartaði ekkert þegar hann hafði fengið sprautuna. Gekk út með bros á vör.
Það sem vakti athygli var að Bjarni var tekinn fram fyrir röð af fólki sem beið. „Bjarni, komdu bara inn,“ sagði hjúkkan og bauð þessari goðsögn í lifanda lífi góðan daginn. Við restina sagði hún: „Næsti.“ Bjarni var hress á biðstofunni en hann fór ekki úr frakkanum, ólíkt öðrum sem þar biðu og fóru úr yfirhöfnum eins og hjúkrunarfólkið bað fólk um að gera og ræddi um fótbolta við aðra gesti - enda með gríðarlegt vit á þeirri göfugu íþrótt.
Bjarni lék á sínum yngri árum knattspyrnu með KR og varð Íslandsmeistari með liðinu 1959, 1961, 1963, 1965 og 1968. Auk þess sem hann varð bikarmeistari með liðinu 1960, 1961, 1962, 1963, 1964, 1966, og 1967. Alls lék Bjarni sex A-landsliðsleiki fyrir hönd Íslands og þá fékk hann heiðursskjöld frá KSÍ fyrir störf sín. Það er því næsta víst að Bjarni er enn þá stjarna í augum hjúkrunarfólks.





Saga íslenskra lífeyrissjóða einkennist af sukki andlitslausra manna sem hafa farið með fjármunina nánast eins og sína eigin. Í áranna rás hafa fjölmargir stjórnarmanna notið boðsferða frá hagsmunaöflum með tilheyrandi ... 
Cox ekki sofið hjá í tæplega 2 ár
Varði eiginmanninn
Partý í skugga veikinda
Arnold og Stallone leika saman í nýrri mynd
Á sínar villtu hliðar