ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 4.0° 7m/s WSW

Ásgeir hættur sem talsmaður Björgólfs

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
18:38 › 6. nóvember 2009
Ásgeir Friðgeirsson hættur að fara með málefni Björgólfs Guðmundssonar.

Ásgeir Friðgeirsson hættur að fara með málefni Björgólfs Guðmundssonar.

„Björgólfur á engin fyrirtæki lengur sem geta borgað fyrir þjónustu mína,“ segir Ásgeir Friðgeirsson sem er hættur sem talsmaður Björgólfs Guðmundssonar. Ásgeir hefur um árabil verið helsti talsmaður Björgólfsfeðganna en eftir að Björgólfur lýsti sig gjaldþrota í sumar lauk viðskiptum þeirra.

Ásgeir segir í samtali við DV.is að ljóst sé að Björgólfur geti ekki borgað fyrir þjónustu sína lengur og því sé samstarfi þeirra lokið en hann heldur ótrauður áfram með ráðgjafafyrirtæki sitt þrátt fyrir að áralöngu samstarfi hans og Björgólfs eldri sé nú lokið. Ásgeir var meðal annars varaformaður knattspyrnufélagsins West Ham í tíð Björgólfs sem stjórnarformanns þess félags en þeir létu af störfum í júní síðastliðinn.

„Ég rek bara mitt fyrirtæki eins og ég hef alltaf gert og sel mönnum mína þjónustu,“ segir Ásgeir Friðgeirsson.

Björgólfur var úrskurðaður gjaldþrota í lok júlí í sumar en þá skuldaði hann 96 milljarða króna.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.