ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 6.0° 9m/s E

11 þúsund uppsagnir fjarri lagi segir Óskar

Jóhann Hauksson johannh@dv.is
15:55 › 6. nóvember 2009
Um fjórðungur áskrifenda tapaðist við ritstjóraskiptin samkvæmt niðurstöðum könnunar Háskólans á Bifröst.

Um fjórðungur áskrifenda tapaðist við ritstjóraskiptin samkvæmt niðurstöðum könnunar Háskólans á Bifröst.

  • Óskar Magnússon

    Óskar Magnússon

Óskar Magnússon útgáfustjóri Morgunblaðsins segir á fréttavef mbl.is að frétt DV um 11.000 uppsagnir áskrifenda að Morgunblaðinu eftir að nýir ritstjórar tóku við því í lok september sé fjarri raunveruleikanum. „Frétt DV um þann fjölda áskrifenda sem á að hafa hætt áskrift að Morgunblaðinu að undanförnu er fjarri raunveruleikanum. Það á reyndar við um flestar fréttir DV um málefni Morgunblaðsins."

Frétt DV er byggð á niðurstöðum könnunar sem gerð var fyrir viku síðan af Rannsóknarmiðstöð háskólans á Bifröst. Hún gefur til kynna að 2.600 manns hafi sagt upp áskrift fram eftir ári og að minnsta kosti 11.000 þúsund hafi bæst við eftir að nýju ritstjórarnir tóku við blaðinu. Þetta samsvarar um fjórðungi áskrifenda.
Jafnframt leiðir könnunin í ljós að níu af hverjum tíu eru ekki líklegir til þess að hefja áskrift á ný að óbreyttu.
DV hefur ekki forsendur til þess að véfengja niðurstöður könnunarinnar og Óskar Magnússon hefur ekki birt gögn sem sýna að niðurstöður hennar séu fjarri raunveruleikanum.

„Það eru gerðar reglulegar viðurkenndar og samræmdar kannanir sem notast er við að því marki sem þær gefa raunhæfa mynd," segir Óskar í samtali við mbl.is.
Eftir helgina er væntanleg samandregin lestrarkönnun fyrir síðustu þrjá mánuði. Þar á meðal er lesturinn í október, mánuðinum sem Morgunblaðið bar áfram út blaðið til þeirra sem sagt höfðu upp áskrift.
Um nýliðin mánaðamót hafa starfsmenn Morgunblaðsins kannað með símhringingum vilja þeirra sem sögðu upp blaðinu til að gerast áskrifendur á ný.
Haldbæra niðurstöðu um lestur blaðsins er því varla að vænta fyrr en í byrjun febrúar á næsta ári, eftir aðra þrjá mánuði, en þá verða birtar lestrartölur um nóvember, desember og janúar.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.