Ný könnun bendir til þess að um fjórðungur áskrifenda hafi sagt upp áskrift sinni á Morgunblaðinu eftir að Davíð Oddsson tók við ritstjórn þess. Flest allir ætla ekki að taka blaðið í áskrift aftur að óbreyttu samkvæmt könnuninni. Heimildir eru fyrir því að stærstu hluthafar hafi neyðst til að leggja blaðinu til hundruð milljóna í síðasta mánuði. Örvænting er sögð ríkja í hluthafahópnum.
Morgunblaðið hefur tapað um fjórðungi áskrifta það sem af er árinu. Flestar hafa uppsagnir áskrifta verið eftir að nýir ritstjórar tóku við blaðinu í lok september síðastliðinn eða um 11 þúsund.
Samkvæmt heimildum DV kannaði Rannsóknarmiðstöð Háskólans á Bifröst uppsagnir áskrifta á Morgunblaðinu og viðhorf til áskriftarsjónvarps Skjás eins fyrir um viku síðan. Könnunin var gerði fyrir fyrirtækið Auglýsingamiðlun ehf.
DV hefur upplýsingar um niðurstöður könnunarinnar. Á grundvelli þeirra má áætla að Morgunblaðið hafi tapað um 10 þúsund áskriftum eftir að Davíð Oddsson og Haraldur Jóhannessen tóku sæti ritstjóra á Morgunblaðinu í lok september.
Könnunin leiðir jafnframt í ljós að Morgunblaðið tapaði að minnsta kosti 2.500 áskriftum fram að ritstjóraskiptum á árinu.





Gamla fólkið verst úti
Manndráp í Hafnarfirði: Maðurinn vel þekktur hjá lögreglu
Ekki búið að reisa girðingu við Klepp
Slasaðist á sjó og fær ekki laun
Íslenskir barnaníðingar í útlöndum hundeltir