ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.0° 2m/s WSW

Veruleg kaupmáttarrýrnun: „Næsta ár verður afar erfitt“

14:15 › 5. nóvember 2009
Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna.

Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. Mynd DV

„Þetta er mjög mikil rýrnun í kaupmætti og segir okkur eitt; næsta ár verður afar erfitt fyrir mjög mörg heimili,“ segir Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna. Í Peningamálum Seðlabankans kemur fram að spáð er 15 prósenta kaupmáttarrýrnun á næsta ári. Fyrri spár bankans höfðu gert ráð fyrir rúmlega sjö prósenta rýrnun.

Ástæða þess að forsendur spárinnar breytist jafn mikið og raun ber vitni er sú að í fyrri spám var ekki gert ráð fyrir að beinir skattar myndu hækka jafn mikið og Seðlabankinn gerir ráð fyrir í nýju spánni. Rýrnunin á næsta ári bætist við rúmlega nítján prósenta kaupmáttarrýrnun sem gert er ráð fyrir að verði í lok þessa árs, 2009.

„Þetta verður mjög erfitt ár og virkar sem högg á mann að heyra svona tölu. Það eina sem við skulum vona er að hún rætist ekki að fullu leyti,“ segir Jóhannes.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.