ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.5° 4m/s E

Nóróveirusýking Kaupþingsfólks í rénun

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
17:17 › 5. nóvember 2009
250 starfsmenn Kaupþings sýktust af nóróveirunni.

250 starfsmenn Kaupþings sýktust af nóróveirunni.

Nóróveirusýkingin sem kom upp í Nýja Kaupþing banka og tengdum félögum í Reykjavík í liðinni viku er í rénun. Alls er talið að um 250 manns hafi veikst af veirunni.

Niðurstöður rannsóknar á vegum Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, Sóttvarnalæknis og Matvælastofnunar benda til að í upphafi hafi smit dreifst til starfsmanna með matvælum og í kjölfar þess átti sér stað smit manna á milli. Ekki er vitað hvernig veiran barst í matvælin. Svo segir í fréttatilkynningu frá Sóttvarnalækni, Matvælaeftirliti - Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur og Matvælastofnun.

Tími frá smiti þar til einkenni koma fram eru 1-2 sólarhringar. Helstu einkenni nóróveirusýkingar eru niðurgangur og/eða uppköst sem fylgt geta kviðverkir, beinverkir, höfuðverkur og stundum vægur hiti. Sjúkdómurinn gengur í langflestum tilfellum yfir á einum til þremur sólarhringum án nokkurrar meðferðar.

Smitleiðir eru margar og getur veiran smitast beint manna á milli við snertingu. Uppköst eru bráðsmitandi og eru dæmi þess að veiran hafi borist í loftinu til fólks í nánasta umhverfi. Önnur algeng smitleið er með fæðu og vatni og er mengun matvæla frá sýktum einstaklingum algeng smitleið. Einnig geta matvæli mengast í framleiðslunni með menguðu vatni við vökvun eða skolun.

Gripið var til víðtækra ráðstafana í samráði við heilbrigðiseftirlitið og sóttvarnarlækni til að rjúfa ofannefndar smitleiðir og ekki er talin frekari hætta á smiti með matvælum innan fyrirtækisins.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.