ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.7° 4m/s SSW

Nauðgað fyrir framan son sinn

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
12:12 › 5. nóvember 2009
Þrátt fyrir mikla leit að manninum hefur hún enn engan árangur borið.

Þrátt fyrir mikla leit að manninum hefur hún enn engan árangur borið.

Breska lögreglan, Scotland Yard, leitar nú að manni sem grunaður er um að hafa nauðgað 23 ára gamalli konu á heimili hennar. Árásin var mjög hrottafengin, ekki síst í ljósi þess að þriggja ára gamall sonur konunnar fylgdist með árásinni.

Breska blaðið Telegraph greinir frá þessu í dag en þar kemur fram að konan hafi mælt sér mót við manninn þann 30. september, skammt frá Sutton í Suður-Lundúnum. Konan kynntist manninum á Netinu og ákváðu þau að fara heim til konunnar til að fá sér te.

Maðurinn er sagður hafa ráðist skyndilega á konuna, kýlt hana í andlitið með þeim afleiðingum að hún missti meðvitund og nauðgað henni síðan. Þrátt fyrir mikla leit hefur hún engan árángur borið og hefur breska lögreglan því leitað til almennings vegna málsins.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.