ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.0° 2m/s WSW

Faðir Lindu Bjarkar: „Óþægilegast að vita ekkert hvar hún er“

10:08 › 5. nóvember 2009
Magnús Þór segir að óþægilegast sé að vita ekki hvar dóttir sín er niðurkomin.

Magnús Þór segir að óþægilegast sé að vita ekki hvar dóttir sín er niðurkomin.

„Ég ætla bara að vona að hún finnist fljótlega. Það er óþægilegast að vita ekkert hvar hún er,“ segir tónlistarmaðurinn Magnús Þór Sigmundsson. Bandaríska alríkislögreglan, FBI, leitar nú að dóttur Magnúsar, Lindu Björk, en hún slapp úr haldi lögreglu í gær eftir að hafa verið handtekin grunuð um að vera ólögleg í landinu.

Linda Björk, sem er 42 ára, var handtekin þegar hún var að fara yfir landamæri Kanada til Bandaríkjanna. Það var staðarblaðið í Plattsburgh í New York-ríki sem greindi frá leitinni í gærkvöldi en þar kemur fram að Linda hafi sloppið úr haldi þegar leiða átti hana fyrir dómara. Vegatálmar voru settir upp og þyrlur notaðar við leitina.

„Ég talaði við hana í fyrradag og þá virtist allt í lagi með hana,“ segir Magnús. Hann segir að Linda eigi bandarískan kærasta og hafi um tíma búið í Bandaríkjunum. Þau fluttu saman til Íslands fyrir nokkrum árum en fyrir um tveimur til þremur mánuðum segir Magnús að Linda hafi flutt til Kanada þar sem hún fór að vinna. Á sama tíma fór kærasti hennar hinsvegar til Bandaríkjanna.

„Ég veit að hún er búinn að vera að sækja um á komast til Ameríku. Ég held hún hafi verið að reyna komast inn í Ameríku án þess að hafa leyfi til þess. Ég held hún hafi ætlað að fara hitta þennan mann,“ segir Magnús og bætir við að mjög óþægilegt sé að vita ekki hvar dóttir sín er niðurkomin. Linda á tvær dætur, önnur þeirra er á nítjánda aldursári og býr á Íslandi en hin er 21 árs og býr í Bandaríkjunum.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.