ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 2.9° 4m/s E

Hittu þekktustu stuðningsmenn United

14:04 › 5. nóvember 2009
Flott gengi. Magnús, Davíð Snorri Jónasson og Elvar Geir Magnússon ásamt síkönunum.

Flott gengi. Magnús, Davíð Snorri Jónasson og Elvar Geir Magnússon ásamt síkönunum.

„Við vorum fimm saman í hópferð á leik Manchester United og Blackburn. Við vorum í engum sérstökum sætum, en ekki langt frá varamannaskýlum. Þar sáum við þá félaga fyrir leik og þá var ekkert um annað að ræða en að láta taka mynd af sér með þeim félögum,“ segir Magnús Már Einarsson, ritstjóri á fótbolti.net, en hann ásamt félögum sínum lét taka mynd af sér með einhverjum þekktustu stuðningsmönnum Manchester United, síkönunum við hliðina á varamannaskýlunum.

Síkarnir vekja gjarnan mikla lukku en þeir sjást nánast í hvert einasta sinn sem Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester, sést í sjónvarpinu. Hafa glöggir menn séð að þeir láta sig aldrei vanta á heimaleiki á Old Trafford.

„Við þekktum þá um leið og þeir voru mjög hressir. Fannst gaman að við værum komnir alla leið frá Íslandi. Mér sýndist fleiri vera að biðja um mynd af sér með þeim og þeir spjölluðu við alla. Toppmenn.“

Magnús er gallharður Liverpool-maður og segir muninn á Old Trafford og Anfield, heimavelli Liverpool, felast í stemmingunni. „Það fer kannski eftir því hvar maður situr - en það var nánast engin stemming þar sem við sátum - svona miðað við það sem maður hefur upplifað,“ segir Magnús en hann varð eftir á Englandi. Eingöngu til að sjá Liverpool etja kappi við Birmingham á mánudag.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.