ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.9° 2m/s NW

Hermaður gekk berserksgang – 12 látnir á herstöð

Ritstjórn DV ritstjorn@dv.is
22:52 › 5. nóvember 2009
Obama segir það mikinn harmleik þegar hermenn láta lífið, hvað þá í heimalandinu.

Obama segir það mikinn harmleik þegar hermenn láta lífið, hvað þá í heimalandinu.

Að minnsta kosti 12 voru skotnir til bana eftir að bandarískur hermaður gekk berserksgang á herstöð í Texas í kvöld. Auk þess að skjóta á annan tug manna til bana særðust rúmlega þrjátíu eftir að hermaðurinn Hassan Malik hóf skothríð með tveimur skammbyssum í Fort Hood í Killeen.

Árásin átti sér stað í þeim hluta herstöðvarinnar þar sem hermenn gangast undir læknisskoðun áður en þeir eru sendir til herþjónustu úti í heim.

Ellefu hinna látnu eru hermenn en einn óbreyttur lögreglumaður lést einnig eftir árásina.

Barack Obama hefur tjáð sig um árásina og sagði hana hræðilegt ofbeldisverk. Hann lofaði því að ríkisstjórnin myndi fá svör við öllum þeim spurningum sem vakna í kringum rannsókn málsins og sendi hann aðstandendum og fjölskyldum hinna látnu samúðarkveðjur.

Obama sagði nógu slæmt að hermenn týndu lífi við herþjónustu í útlöndum en það væri enn hræðilegra þegar þeir yrðu fyrir árásum í heimalandinu.

Í Fort Hood búa um 35 þúsund bandarískir hermenn.



Lumar þú á fréttaskoti eða áhugaverðu efni? Smelltu hér til að senda okkur fréttaskot.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.